JA cPanel

OneSystems Ísland

OneRecords
OneRecords er málakerfi (Records management) sem gerir fyrirtækjum kleift að stofna mál og flokka skjöl undir þau. » meira
OnePortal Self Service
OnePortal Self Service Stórauktu þjónustu með því að auka aðgengi gagna og gagnsæi ákvarðanatöku með rekjanlegum hætti. » meira
OneCrmSQL
OneCrm SQL Enterprise er samskipta- og skjalastjórnunarkerfi. Byggir á Microsoft vefviðmóti og keyrir á SQL Server. » meira

Tryggingastofnun - Samið um kaup á skjala og gæðakerfum

- Ný kerfi hjá Tryggingastofnun ríkisins frá OneSystems

Frá vinstri: , Hermann Ólason,  framkvæmdarstjóri Upplýsingatæknisviðs TR, Ingimar Arndal, framkvæmdastjóri OneSystems og Ragnheiður Birna Björnsdóttir, deildarstjóri hugbúnaðardeildar TR að lokinni undirskrift samnings um kaup á skjalastjórnunarkerfum frá One Systems.

Frá vinstri: , Hermann Ólason, framkvæmdarstjóri Upplýsingatæknisviðs TR, Ingimar Arndal, framkvæmdastjóri OneSystems og Ragnheiður Birna Björnsdóttir, deildarstjóri hugbúnaðardeildar TR að lokinni undirskrift samnings um kaup á skjalastjórnunarkerfum frá One Systems.

Tryggingastofnun og OneSystems hafa gert með sér samning um kaup og þjónustu á One-skjalavistunarkerfinu. Kerfið er öflugt skjalastjórnunar kerfi sem heldur utan um skjöl, tengiliði og samskipti sem tengjast hverju máli eða ferli svo hægt er að nálgast allar upplýsingar á einum stað. Tilgangurinn með kerfinu er að auðvelda allt utanumhald mála, rekjanleika þeirra og eftirfylgni og öryggi gagna þannig að þjónusta við viðskiptavini verði enn betri.

Megnið af samskiptum TR við viðskiptavini sína tengjast umsóknum vegna réttinda, ákvörðun réttinda, greiðslum og ýmis konar skjöl og tilkynningar svo sem niðurstöðum endurreiknings, greiðsluáætlanir, kvittanir og yfirlit. Fjöldi þessara skjala er umtalsverður. Lausleg talning slíkra skjala vegna TR er um 7 milljónir og vex um 1-2 milljónir á ári og því mikil þörf fyrir að halda skipulega utan um skjöl og mál hjá TR.

OneSystems kerfin byggja á Microsoft stýrikerfum og vef-viðmóti og uppfylla ýtrustu kröfur um skjalaöryggi. Helstu kostir One kerfa eru léttur biðlari, hraði, öflugar aðgangsstýringar, öryggi á gögnum ásamt einföldu og þægilegu viðmóti fyrir notandann. Þróunarstefna OneSystems styður MoReq2, kröfur Evrópulanda um gagnsæi, rekjanleika og öryggi.

Nánar um Tryggingastofnun www.tr.is
Frétt Tryggingastofnunar um samninginn

Fréttayfirlit OneSystems - yfirlit allra frétta

 

Sími þjónustudeildar

Þjónustudeild

Samband
sími: 588 1050
og 588 1060
opið: 9-17 virka daga

TeamViewer hjálp í gegnum netið

Söludeild

Söludeildsími. 660-8551
tölvupóstur:

Umsagnir

"Tónastöðin eykur skilvirkni í samskiptum við birgja með OneCrm"
Andrés Helgason framkvæmdastjóri Tónastöðvarinnar

"Í samskiptum við um 300 birgja víðs vegar um heiminn er mikið mál að halda utan um allar viðskiptaupplýsingar. OneCRM kerfið léttir þetta starf verulega og tryggir auðveldan og skjótan aðgang að þeim gögnum sem á þarf að halda hverju sinni."Tónastöðin

Andrés Helgason, framkvæmdarstjóri

OneSystems

OneHrm.png